GKG salurinn
Garðabær · 150–200 manns
Um salinn
GKG salurinn er staðsettur í nýju og stórglæsilegu húsi Golfklúbbs Garðabæjar, aðeins steinsnar frá Vífilsstöðum. Salurinn er bjartur og fallegur, með stórum gluggum sem bjóða upp á einstakt útsýni. Fyrir framan salinn er stór verönd með borðum og stólum, fullkomin fyrir þá sem vilja njóta veðurblíðunnar og ferska loftsins. Inni í salnum skapa falleg eikargólf og stílhreinar innréttingar hlýja og góða stemningu. Salurinn rúmar þægilega 150 - 200 manns til borðs og hægt er að aðlaga uppstillinguna að óskum hvers og eins. Þar er bar, fullkomið eldhús, gott hljóðkerfi og loftefni sem tryggja framúrskarandi hljóðvist. Á staðnum er píanó fyrir tónlistaráhugafólk og fullkomin stýring á ljósum og birtu. Meðal annars er boðið upp á góða flatskjái og myndvarpa fyrir þá sem þurfa. Aðkoman að húsinu er mjög góð, hvort sem er fyrir rútur eða einkabíla, með nægum bílastæðum. Við bjóðum upp á vandaða veisluþjónustu með hlaðborðum, smáréttum, steikum og sjávarréttum, allt eftir þínum óskum.
Aðstaða
Veitingar og drykkir
Aðstaða
Búnaður og tækni
Aðgengi
Auka þjónusta
Algengar spurningar
Hvað rúmar GKG salurinn marga gesti?
GKG salurinn rúmar 150–200 manns.
Hvar er GKG salurinn?
GKG salurinn er staðsettur í Garðabær, 34M8+PVW.
Hvernig kemst ég í samband við GKG salurinn?
Fylltu út fyrirspurnarformið hér á síðunni, þá berst fyrirspurnin beint til eigenda.